Getur þú lifað af „Á flótta“

A_flotta_skrifstofa.jpg
Skilaboð frá Aacmed

Þegar þú skráir þig í hlutverkaleikin Á flótta færðu  nýtt nafn, þjóðerni, vegabréf og jafnvel nýja fjölskyldu.

Þarnæst hefst örlagarík atburðarás þar sem þú neyðist til þess að flýja lengri eða styttri vegalengdir, kljást við skæruliða, hermenn, svartamarkaðsbraskara og fólkssmyglara, matarlaus, þreyttur og niðurlægður.

Allt miðar þetta að því að upplifun verði eins raunveruleg og hægt er. Leikurinn er erfiður bæði líkamlega sem og andlega þar sem reynt er á öll þolrif, en á sama tíma er þetta spennandi og skemmtilegur leikur  þar sem þú skorar á sjálfan þig.

Tekur þú áskoruninni ?